Fréttir
KVIKMYNDAVERÐLAUNIN NÆSTU HELGI Í HÁSKÓLABÍÓI
Laugardagur 13. september
kl. 16:00: Brúðguminn
kl. 16:00: Heimili dökku fiðraldanna
kl. 18:00: Fyrstu árin - Erik nietzsche
kl. 18:00: maðurinn sem unni Yngvari
kl. 20:00: Þið sem lifið
Sunnudagur 14. september
kl. 16:00: Fyrstu árin - Erik nietzsche
kl. 16:00: maðurinn sem unni Yngvari
kl. 18:00: Þið sem lifið
kl. 18:00: Brúðguminn
kl. 20:00: Heimili dökku fiðraldanna
Kvikmyndin Brúðguminn hefur hlotið tilnefningu í ár til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Leikstjóri er Baltasar Kormákur, handritshöfundar Baltasar
og Ólafur Egill Ólafsson og framleiðendur Agnes Johansen og Baltasar fyrir Sögn ehf. Alls eru fimm myndir tilnefndar, ein frá hverju Norðurlandi, og fær sú mynd sem sigrar verðlaun að fjárhæð 350.000 danskar krónur (um 5,6
milljónir ISK), sem skiptast á milli leikstjóra, handritshöfunda og framleiðenda.
Meðlimur í dómnefnd fyrir hönd Íslands er rithöfundurinn Sjón og varamaður er Sif Gunnarsdóttir, kvikmyndagagnrýnandi. Þau segja í umsögn sinni:
“Í Brúðgumanum, hinni sætbeisku kvikmyndaaðlögun Baltasars Kormáks á leikriti Antons Tsjekhov, tekst á aðdáunarverðan máta að bregða upp mynd af
manni sem glímir við það hvort hann á að vera trúr andlega óstöðugri konu sinni eða láta undan þránni sem ung stúlka kveikir í honum. Sögusviðið er lítil eyja við vesturströnd Íslands, þar lifnar sagan í lokuðu samfélagi fullu af elskulegum en ófullkomnum heimamönnum, sem
annaðhvort styðja aðalpersónuna í efafullri leit sinni að hamingju eða leggja stein í götu hennar. Brúðguminn í myndinni, fyrrverandi háskólakennari að nafni Jón, er næstum óbærilega veiklundaður í uppgjöf sinni fyrir ástinni, en sagan er sögð af slíkri alúð og húmor að áhorfendur standa með honum jafnvel þegar ákvörðun hans hefur harmrænar afleiðingar. Þetta er án efa besta kvikmynd Baltasars Kormáks til þessa, í Brúðgumanum kemst hann til fulls þroska sem kvikmyndagerðarmaður á sama tíma og hann nýtir sér uppruna sögunnar til að auðga kvikmyndalist sína með tuttugu ára reynslu úr leikhúsinu, bæði í myndrænni útfærslu og frásagnarbrögum.”
Þær fjórar myndir sem eru að auki tilnefndar eru:
Frá Danmörku, Fyrstu árin - Erik Nietzsche - 1. hluti (The Early Years – Erik Nietzsche Part 1 / De unge år – Erik Nietzsche Part 1), leikstjóri Jacob Thuesen, handritshöfundur Lars von Trier og framleiðendur Sisse Graum Jørgensen og Marie Gade (Zentropa).
Frá Finnlandi, Heimili dökku fiðraldanna (The Home of the Dark Butterflies / Tummien Perhosten Koti), leikstjóri Dome Karukoski, handritshöfundur Marko Leino (byggt á bók eftir Leena Lander) og framleiðandi Markus Selin (Solar Films).
Frá Noregi, Maðurinn sem unni Yngvari (The Man who Loved Yngve / Mannen som elsket Yngve), leikstjóri Stian Kristiansen, handritshöfundur Tore Renberg (byggt á eigin bók) og framleiðandi Yngve Sæther (Motlys).
Frá Svíðjóð: Þið sem lifið (You, The Living / Du Levande),
leikstjóri/handritshöfundur Roy Andersson og framleiðandi Pernilla Sandström (Studio 24).
Sýningar laugardag og sunnudag
Græna ljósið sýnir allar myndirnar fimm helgina 13. og 14. september í Háskólabíói og tekur þar með þátt í kvikmyndaviðburðum sem fara fram í öllum höfuðborgum Norðurlandanna á næstu vikum. Almenningi í öllum
löndunum gefst þar með í fyrsta skipti tækifæri til að sjá allar þær myndir sem hljóta tilnefningu í ár.
Dagskrá og miðasala á Miði.is
Upplýsingar:
www.nordiccouncilfilmprize.com
www.nordiskfilmogtvfond.com
www.norden.org
Dómnefnd Kvikmyndaverðlauna
Norðurlandaráðs 2008:
Meðlimir:
Anne Jerslev, lektor – Danmörk
Johanna Grönqvist, ritstjóri – Finnland
Sigurjón B. Sigurðsson (Sjón), rithöfundur – Ísland
Le LD Nguyen, kvikmyndagagnrýnandi – Noregur
Eva af Geijerstam, kvikmyndagagnrýnandi – Svíþjóð
Varamenn:
Bo Green Jensen, rithöfundur og kvikmyndagagnrýnandi – Danmörk
Kati Sinisalo, ritstjóri – Finnland
Sif Gunnarsdóttir, fv. kvikmyndagagnrýnandi og menningarfræðingur– Ísland
Øyvor Dalan Vik, kvikmyndagagnrýnandi – Noregur
Tony Forsberg, kvikmyndatökumaður – Svíþjóð
Dagsetningar kvikmyndasýninga:
13. – 14. september: Reykjavik (Háskólabíó)
18. – 28. september: Helsinki
29. sept. – 2. október: Kaupmannahöfn
4. – 5. október: Osló
11. – 12. október: Stokkhólmur
“Það að vera manneskja og listamaður í Norðrinu felur í sér sjálvirkt, meðfætt þunglyndi, sem skýtur enn dýpri rótum er maður uppgötvar að hið svokallaða “norræna lýðræði” er eins og slanga sem kyrkir íbúana til dauða með sínum góða
ásetningi.”
- Aki Kaurismäki, finnskur leikstjóri og handritshöfundur, en hann hlaut Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2002.

