Fréttir

KVIKMYNDAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS Í HÁSKÓLABÍÓI

1. september verður tilkynnt hvaða fimm kvikmyndir eru tilnefndar í ár til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Græna ljósið sýnir myndirnar fimm í Háskólabíói 13. og 14. september.

FRÉTTATILKYNNING
frá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum (Nordisk Film & TV Fond) og Græna ljósinu
- Reykjavík, 18. ágúst 2008

Norræn kvikmyndagerð er upp á sitt besta þegar hún er hörð, dökk og sönn, eins og hjá Strindberg og Ibsen.”
- Per Fly, danskur leikstjóri og handritshöfundur sem vann kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2005

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2008:
Kvikmyndaviðburðir í öllum fimm höfuðborgunum.

Þann 1. september n.k. verður kunngjört hvaða fimm kvikmyndir hafa hlotið tilnefningu til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2008. Ein mynd frá hverju landi hlýtur tilnefningu; Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð og Noregi. Í fyrsta skipti gefst almenningi í öllum löndunum tækifæri til að sjá myndirnar á sérstökum sýningum í höfuðborgunum fimm. Sýningarnar hérlendis fara fram í Háskólabíói 13. og 14. september í samstarfi við Græna ljósið.

- “Við viljum heiðra það fólk og þær myndir sem hafa hlotið tilnefningar í ár”, segir Hanne Palmquist, framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins sem hefur yfirumsjón með Kvikmyndaverðlaununum. “Mögulega hefði ein eða fleiri myndanna aldrei verið sýndar í kvikmyndahúsum Norðurlandanna fimm. Nú fá áhorfendur tækifæri til að sjá allar myndirnar og gera upp sinn eigin hug, áður en sigurvegarinn er tilkynntur 15. október”, bætir Palmquist við.

Kvikmyndasýningarnar hefjast í Reykjavík, eins og áður sagði 13. – 14. september, í Háskólabíói. Í kjölfarið fylgja sýningar í Helsinki 18. – 28. september, Kaupmannahöfn 29. september – 2. október, Osló 4. – 5. október og Stokkhólmi 11. – 12. október.

Á hverju ári veitir Norðurlandaráð bókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun, kvikmyndaverðlaun og náttúru- og umhverfisverðlaun. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á bókmenntum, tungumáli, tónlist og kvikmyndum nágrannalandanna. Hverjum verðlaunum fylgja 350.000 danskar krónur í verðlaunafé.

Héðan koma mínar hugmyndir, minningar og upplifanir. Þetta er minn grunnur og mitt sjónahorn, bæði sem manneskja og listamaður – ef það er hægt að aðskilja þetta tvennt.”
- Lars Saabye Christensen, norskur rit- og handritshöfundur , sigurvegari Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2002

Dómnefnd Kvikmyndaverðlauna
Norðurlandaráðs 2008:

Meðlimir:
Anne Jerslev, lektor – Danmörk
Johanna Grönqvist, ritstjóri – Finnland
Sigurjón B. Sigurðsson (Sjón), rithöfundur – Ísland
Le LD Nguyen, kvikmyndagagnrýnandi – Noregur
Eva af Geijerstam, kvikmyndagagnrýnandi – Svíþjóð

Varamenn:
Bo Green Jensen, rithöfundur og kvikmyndagagnrýnandi – Danmörk
Kati Sinisalo, ritstjóri – Finnland
Sif Gunnarsdóttir, kvikmyndagagnrýnandi – Ísland
Øyvor Dalan Vik, kvikmyndagagnrýnandi – Noregur
Tony Forsberg, kvikmyndatökumaður – Svíþjóð

Líklega nálgast ég norræna menningu frá ólíku sjónarhorni. Ég ólst upp í Líbanon, í gjörólíkum menningarheimi, en ég held að það gagnist myndunum mínum vel, því það er alltaf gaman að hræra saman tveimur ólíkum menningum."
- Josef Fares, sænskur handritshöfundur og leikstjóri, verðlaunahafi kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2006

Mikilvægar dagsetningar:
1. september 2008:
Tilkynnt verður hvaða fimm norrænu myndir hljóta tilnefningu til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs.

15. október: Tilkynnt um hver hlýtur Kvikmyndaverðlaunin og þar með 350.000 danskar krónur. Leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi deila með sér verðlaunafénu.

28. október: Öll verðlaun Norðurlandaráðs (bókmenntir, tónlist, kvikmyndir, náttúra- og umhverfi) eru afhent við hátíðlega haustathöfn Norðurlandaráðs í Helsinki.

Dagsetningar kvikmyndasýninga:
13. – 14. september:             Reykjavik (Háskólabíó)
18. – 28. september:              Helsinki
29. sept. – 2. október:              Kaupmannahöfn
4. – 5. október:                          Osló
11. – 12. október:                          Stokkhólmur

“Það að vera manneskja og listamaður í norðrinu felur í sér sjálvirkt, meðfætt þunglyndi, sem skýtur enn dýpri rótum er maður uppgötvar að hið svokallaða “norræna lýðræði” er eins og slanga sem kyrkir íbúana til dauða með sínum góða ásetningi.”
- Aki Kaurismäki, finnskur leikstjóri og handritshöfundur, en hann hlaut Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2002.

 

FYRRI VERÐLAUNAHAFAR KVIKMYNDAVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS

Árið 2002, á 50 ára afmæli Norðurlandaráðs, voru Kvikmyndaverðlaunin afhent í fyrsta sinn. Sigurvegarinn var finnska myndin Mies vailla menneisyyttä (Maður án fortíðar) eftir Aki Kaurismäki, sem leikstýrði, skrifaði og framleiddi. Myndin hlaut í kjölfarið tilnefningu til Óskarsverðlauna sem besta erlenda mynd ársins. Árið 2005 urðu Kvikmyndaverðlaunin að föstum lið í verðlaunaafhendingu ráðsins.

Árið 2005 sigraði danska myndin Drabet (Manndrápið) sem var leikstýrt af Per Fly, skrifuð af Kim Leona, Dorte Høg, Mogens Rukov og Per Fly og framleidd af Ib Tardini fyrir Zentropa.

Árið 2006 sigraði sænska myndin Zozo (Zozo) eftir leikstjórann og handritshöfundinn Josef Fares en myndin var framleidd af Anna Anthony fyrir Memfis films.

Árið 2007 sigraði danska myndin Kunsten at græde i kor (Kúnstin að gráta) sem var leikstýrt af Peter Schønau Fog, skrifuð af Bo hr. Hansen og framleidd af Thomas Stenderup fyrir Final Cut. Kvikmyndin er byggð á bók eftir Erling Jepsen.

Almennar upplýsingar um Kvikmyndaverðlaunin:
www.nordiskfilmogtvfond.com
www.norden.org

Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica