Fréttir
ÖFLUG DAGSKRÁ BYRJAR Í ÁGÚST
Græna ljósið í sumarfrí út júlí
Græna ljósið sleikir nú sólina og safnar kröftum fyrir haustið. Öflug dagskrá byrjar í ágúst og stendur yfir út árið. Nú er búið að ákveða frumsýningardaga fyrir fjórar næstu myndir.
Græna ljósið er í sumrfrí út júlí en í september hefst fjörið á ný, með frumsýningu nýjustu myndar Morgan Spurlock, sem hefur jafnar sig svo vel eftir hamborgaraátið að hann hyggst gera það sem engum öðrum hefur tekist; að hafa uppi á eftirsóttasta manni jarðríkis, sjálfum Osama Bin Laden.
Næst á dagskrá er Funny Games U.S, sem frumsýnd verður í október. Michael Haneke endurgerir myndina eftir sjálfa sig sem vakti athygli og óhug fyrir nokkrum árum síðar. Tim Roth, Naomi Watts og Michael Pitt fara nú með aðahlutverkin og þessi er engu minni sjokkerandi en frumgerðin.
Næst vindum við kvæði okkar í kross og sýnum nýjustu mynd Woody Allen. Hún sló í gegn á Cannes í maí og gagnrýendur eru sammála um að hér er á ferðinni langskemmtilegasta mynd Allen í áraráðir. Að venju eru leikararnir ekki af verri endanum; Javier Bardem, Peneople Cruza, Scarlett Johanson o.fl.
Þá er komið að magnaðri mynd frá Þýskalandi; Die Welle (The Wave). Tilraun um einræði fer úr böndunum og metnaðarfullur kennari reynir eftir veikum mætti að hafa stjórn á nemendum sínum.
