Fréttir

BRIAN DE PALMA Í REGNBOGANUM FRÁ 7. MAÍ

Bill O'Reilly hótar öllu illu þeim sem sýna myndina

Græna ljósið frumsýnir 7. maí í Regnboganum, myndina Redacted, eftir sjálfan meistara Brian De Palma, en hún hefur vakið hörð viðbrögð ýmissa í Bandaríkjunum, þ.á.m. Bill O'Reilly á Fox News.

Myndin fjallar um sannsögulega atburði, er bandarískir hermenn gerðust sekir um hrottalega glæpi gagnvart saklausum borgurum í Írak, en af lagalegum ástæðum má De Palma ekki segja það beint út. Það fer þó ekkert á milli mála þegar horft er á myndina, enda notar De Palma ýmiss brögð til að gera áhrifin sem allra raunverulegust.

Margir gagnrýnendur hafa hrifist mjög af myndinni og hafa m.a. sagt að færni De Palma sem kvikmyndargerðarmanns hafi aldrei verið meiri og þetta sé hans besta mynd síðan Casualties of War.

Græna ljósið er stolt af því að bjóða upp á Redacted eftir Brian De Palma í Regnbognanum og óskar öllum góðrar skemmtunar! Að venju fær Bíóklúbbur Græna ljóssins tækifæri til að tryggja sér boðsmiða á myndina og er stefnt að því að senda út boðsmiðakóða á frumsýningardaginn 7. maí.

Allt um myndina
Bill O'Reilly á YouTube

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica