Fréttir

BÍÓDAGAR Í REGNBOGANUM 11. - 24. APRÍL

Bíódagar Græna ljóssins verða haldnir annað sinni 11. - 24. apríl í Regnboganum. Um er að ræða 2ja vikna kvikmyndaveislu þar sem 10-20 sérvaldar gæðamyndir frá öllum heimshornum verða frumsýndar.
Bíódagar slógu í gegn í ágúst í fyrra; um 10.000 þúsund manns sóttu hátíðina og meðal frumsýndra mynda voru til dæmis Die Falscher (The Counterfeiters) sem vann nýverið Óskarsverðlaun sem besta erlenda myndin og Away From Her sem aflaði Julie Christie óskarsverðlaunatilnefningar.

Bíódagarnir eru ekki hefðbundin kvikmyndahátíð í þeim skilningi að mikill fjöldi mynda sé sýndur á 10 dögum og að hver mynd sé aðeins sýnd í 1-3 skipti. Bíódagar standa yfir í 2 vikur, þeir leggja undir sig Regnbogann og reynt er að takmarka fjölda myndanna en velja þær á móti sérlega vel og lögð á það áhersla að hægt sé að sýna hverja mynd nokkuð oft. Í raun má segja að um sameiginlega útgáfu myndanna sé að ræða því sýningarfjöldi þeirra mun slaga upp í það sem gengur og gerist með "hefðbundna" útgáfu.

::: FYRSTU 7 TITLARNIR
Úrvalið á Bíódögum í apríl verður ekki af verri endanum og meðal þeirra mynd sem áhorfendur mega búast við að sjá eru:

THE BAND´S VISIT (Bikur Ha-Tizmoret - Eran Kolirin, 2007, 87mín, Ísrael / Frakkland / USA)
Margverðlaunuð, hugljúf og bráðfyndin mynd frá Ísrael sem hefur farið sigurför um heiminn. Stórsveit skipuð lögreglumönnum frá Egyptalandi heldur til Ísrael, til að að koma fram í menningarmiðstöð Araba, en villast og gerast strandaglópar í litlum og afskaplega rólegum bæ, þar sem koma þeirra vekur óskipta athygli og oft á tíðum kátínu meðal Egypsku bæjarbúanna. IMDB

BEUFORT (Joseph Cedar, 2007, 125mín, Ísrael)
Fyrsta myndin frá Ísrael sem tilnefnd hefur verið til Óskarsverðlauna, en hún var tilnefnd sem besta erlenda myndin í ár. Myndin segir sögu 22ja ára hermanns og hersveitar hans mánuðina áður en ísraelsher dró sig út úr Líbanon árið 2000. Óvinurinn er ósýnilegur, en sprengjur falla af himnunum á meðan skelfingu lostnir ungir hermenn gera sitt besta til að uppfylla skyldur sínar fram til síðustu stundar. Leikstjórinn Joseph Cedar hlaut Silfurbjörninn í Berlín fyrir bestu leikstjórnin árið 2007. IMDB

SURFWISE (Doug Pray, 2007, 93mín, USA)
Óborganleg heimildarmynd um hinn 85 ára lækni, heilsufrík, brimbrettagæja og kynlífsgúrú Dorian "Doc" Paskowits, sem varð þjóðþekktur í Bandaríkjunum fyrir að snúa baki við farsælum starfsferli og bandarískri velmegun og valdi ásamt konunni sinni þess í stað að búa í húsbíl, ferðast um landið þvert og endilangt, vera sjálfum sér næg og stunda brimbrettin alla daga. Doc er enn í fullu fjöri og fer á kostum í myndinni, þegar hann rekur sögu sína og lýsir sínum sérstöku skoðunum á lífinu og tilverunni. IMDB

THE AGE OF IGNORANCE (L' Âge des ténèbres - Denys Arcand, 2007, 104mín, Canada)
Nýjasta myndin frá Denys Arcand sem hlaut Óskarsverðlaunin árið 2007 fyrir Barbarian Invasions. Hér er á ferðinni lokakaflinn í trílógíunni sem hófst með "The Decline of the American Empire". Við kynnumst örvæntingarfullum borgarstarfsmanni sem er búinn að fá upp í kok af tilbreytingarnsauðri grámyglunni og gleðisnauðu lífi sínu, þar sem starfið er drepleiðinlegt, konan þolir hann ekki og dæturnar skilja hann ekki. Hans einu ánægjustundir eru þegar hann flýr raunveruleikann inn í draumaheiminn, þar sem hann er mikil hetja og allt gengur honum í haginn. IMDB

CARAMEL (Sukkar banat - Nadine Labaki, 2007, 95mín, Frakkland / Líbanon)
Hugljúf rómantísk grínmynd frá Líbanon, sem hefur fengið frábæra dóma um allan heim, eftir leikkonuna Nadine Labaki, sem fer einnig með aðahlutverkið. Við fylgjumst með daglegu lífi fimm kvenna í Beirút sem eiga það sameiginlegt að stunda sömu snyrtistofuna. Það gengur á ýmsu í karlamálum og öðrum málum en konurnar standa saman í gegnum súrt og sætt. IMDB

LAKE OF FIRE (Tony Kaye, 2006, 152mín, USA)
Stórbrotin, epísk og gríðarlega áhrifarík heimildarmynd eftir Tony Kaye (American History X) um fóstureyðingardeiluna í Bandaríkjunum. Kaye eyddi 18 árum í gerð myndarinnar og kafar dýpra en áður hefur sést í allar hliðar málsins. Svart hvítt listaverk sem á sér engan líka og lætur engan ósnortinn. IMDB

WAR / DANCE (Sean Fine / Andrea Nix, 2007, 105mín, USA)
Mögnuð heimildarmynd sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár og vann leikstjórnarverðlaunin á Sundance. Sögusviðið er Norður Úganda, land sem hefur þurft að þola stanslaus stríðsátök í tvo áratugi og við kynnumst Dominic, Rose og Nancy, þremur börnum sem hafa misst allt í stríðinu; fjölskyldur þeirra eru sundraðar, heimilin í rúst og þau draga fram lífið hrörlegum flóttamannabúðum. Þegar þeim er boðið að taka þátt í árlegri dans- og tónlistarhátíð fá þau tækifæri til að endurheimta æskuna og upplifa í fyrsta skipti hvernig það er að sigra. IMDB

::: AÐ LOKUM
Nýjustu fréttir af framgangi Bíódaga verður alltaf hægt að finna á vefsíðu Græna ljóssins. Sérstök áhersla verður lögð á það að verðlauna skráða meðlimi í Bíóklúbbi Græna ljóssins og mega þeir eiga von á boðsmiðum og fleira góðgæti. Ráðgert er að selja 10 mynda afsláttarpassa í takmörkuðu magni og verður fyrirkomulagið kynnt innan skamms. Sala á pössum og miðum fer fram á Miði.is og þar verður einnig hægt að nálgast dagskrá Bíódaga. Ráðgert er að velja opnunarmynd sem mun vekja mikla lukku og athygli og verður hún kynnt innan skamms, en nokkrir mögulegir titlar eru nú í skoðun hjá Græna ljósinu.

 


Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig



Þetta vefsvæði byggir á Eplica