Fréttir

FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ 11. - 24. JANÚAR Í HÁSKÓLABÍÓI

11 GÆÐAMYNDIR FRUMSÝNDAR

Sýndar verða 11 sérvaldar, fjölbreyttar, splunkunýjar gæðamyndir; brot af því besta sem hefur komið frá Frakklandi undanfarin misseri.

Opnunarmyndin á hátiðinni er PERSEPOLIS, teiknimynd fyrir alla aldurshópa, byggð á samnefndum sjálfsævisögum hinnar írönsku Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna. Myndin hefur fengið frábæra dóma nýverið og þykir mjög sigurstrangleg á komandi verðlaunahátíðum næstu vikurnar. Með aðalhlutverkin fara m.a. Catherine Deneuve, Chiara Mastroianni o.fl.

Meðal annarra athyglisverðra mynda má nefna heimildarmyndina LÖGMANN HRYÐJUVERKANNA eftir Barbet Schroeder, um lögfræðinginn sem tekur að sér að verja alla verstu skúrka heims, þ.á.m. Mao Tse Tung og Saddam Hussein; nýjustu mynd Íslandsvinarins Emir Kusturica, LOFAÐU MÉR, sem sló í gegn á Cannes fyrr á árinu og var frumsýnd í nóvember s.l.; 2 DAGAR Í PARÍS, rómantíska gamanmynd eftir Julie Delpy og MOLIÉRE, stórbrotna og bráðskemmtilega mynd um gamanleikskáldið fræga, Molière.

Peugeot er aðalstyrktaraðili frönsku kvikmyndahátíðarinnar. Athugið að allar myndirnar eru sýndar með enskum texta. Sýningardagskrá og miða verður hægt að nálgast á Midi.is.

Þeir sem eru skráðir í Bíóklúbb Græna ljóssins fá sent 11. janúar í tölvupósti, 2 fyrir 1 tilboð, sem gildir alla næstu helgi á sýningar að eigin vali. (Kóði sem gildir á Miði.is)



Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica