Fréttir
THE SECRET Á ÍSLENSKU ER KOMIN Í VERSLANIR
Kvikmyndin THE SECRET - LEYNDARMÁLIÐ er komin í verslanir veglegum íslenskum DVD diski. Á diskinum er kvikmyndin sjálf sem hefur startað miklu æði um allan heim, í fyrsta skipti með íslensku tali og íslenskum texta. Auk þess er spennandi aukaefni á diskinum, m.a. kíkt bak við tjöldin við gerð myndarinnar, sýndar glappatökur og ýmislegt kynningarefni. Fjöldi fólks hefur beðið þessa disks með eftirvæntingu og biðin er sem sagt hér með á enda.
Leyndarmálið fer nú eins og eldur um sinu um heimsbyggðina og allt byrjaði þetta á The Secret kvikmyndinni. The Secret kvikmyndin og bókin hafa selst út um allan heim í milljónum eintaka og íslensk þýðing bókarinnar hefur trónaði á toppi sölulistanna í margar vikur eftir að hún kom út. Leyndarmálið hefur auk þess fengið gríðarlega umfjölun í helstu fjölmiðlum heims og til að mynda reglulega til umfjöllunar hjá Opruh Winfrey, vinsælasta spjallþætti heims.
Myndin hefur hingað til aðeins verið fáanleg í erlendum útgáfum og textalaus. Það eru því miklar gleðifréttir að loksins sé þessi merkilega mynd komin til landsins í íslenskri útgáfu - og það á viðráðanlegu verði! Leyndarmálið breytir lífi fólks og því er hér um tilvalda jólagjöf að ræða, fyrir unga sem aldna.
Nánari upplýsingar hér

