Fréttir

THE SECRET VÆNTANLEG Á ÍSLENSKU

Leyndarmálið fer nú eins og eldur um sinu um heimsbyggðina og allt byrjaði þetta á The Secret kvikmyndinni. Græna ljósinu er það því mikill heiður og ánægja að tilkynna hér með um að hafa verið valinn hinn íslenski dreifingaraðili myndarinnar. Von er á veglegri íslenskri útgáfu á DVD í lok nóvember eða byrjun desember. Á diskinum verður kvikmyndin í fyrsta skipti fáanleg með íslensku tali.

The Secret kvikmyndin og bókin hafa selst út um allan heim í milljónum eintaka og íslensk þýðing bókarinnar hefur trónað á toppi sölulista svo til sleitulaust síðan hún kom út. Leyndarmálið hefur auk þess fengið gríðarlega umfjölunn í helstu fjölmðiðlum heims og til að mynda reglulega til umfjöllunar hjá Opruh Winfrey. Það eru því miklar gleðifréttir að loksins verði þessi merkilega mynd fáanleg í íslenskri útgáfu - og það á viðráðanlegu verði!

::: THE SECRET PÓSTLISTINN
Við höfum stofnað sérstakan The Secret póstlista fyrir áhugasama og með því að skrá sig geta þeir verið vissir um að fá allra fyrsti fréttirnar af langþráðri komu íslenska DVD disksins. Allir sem skrá sig fá tækifæri til að tryggja sér diskinn á undan öllum öðrum.

Skráning fer fram á The Secret svæðinu á vefsíðu Græna ljóssins og þar er einnig að finna allar upplýsingar um fyrirbærið The Secret, kvikmyndina og væntanlegan disk.



Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica