Fréttir
ÞRJÚ MEISTARAVERK FRUMSÝND 12. OKTÓBER
ÞAR Á MEÐAL 4 MONTHS, 3 WEEKS 2 DAYS
Græna ljósið á þrjár frábærar kvikmyndir á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni sem er í fullum gangi þessa dagana. Aðeins er um 2-3 sýningar að ræða á hverri mynd á hátíðinni en almennar sýningar á öllum þremur myndunum hefjast svo 12. október í Regnboganum
Myndirnar hafa allar verið að vekja lukku á hátíðinni og fengið frábæra dóma íslenskra gagnrýnenda. Myndirnar eru:
Myndin sem allir eru að tala um - eldfimt umfjöllunarefni, handhafi gullpálmans í Cannes fyrir skemmstu, og enn ein myndin í runu frábærra kvikmynda frá Rúmeníu. Myndin lýsir þeim hremmingum sem tvær ungar stúlkur lenda í þegar þær kaupa ólöglega fóstureyðingu af Hr. Bebe. Myndin gerist á síðari skeiðum kommúnismans í Rúmeníu þar sem fóstureyðingar voru bannaðar. Anamaria Marinca sýnir stórkostlegan leik í hlutverki Otiliu, góðhjartaðrar vinkonu og herbergisfélaga hinnar óléttu Gabitu. Frammistaða hennar í bland við hráa myndatöku og magnað handrit gera myndina á köflum óþægilega raunsæislega en að sama skapi afskaplega eftirminnilega.
Kvikmynd Akin, Gegen die Wand (2004), vakti mikla lukku um allan heim fyrir tveimur árum og ekki er minna vænst af nýjasta verki leikstjórans, sem hefur farið mikinn á hátíðarröltinu og var m.a. með í keppni í Cannes nú í ár. Þar segir frá tengslum og flækjum í lífi nokkurra Tyrkja og Þjóðverja í einkar vel heppnuðu mannlegu drama sem færist á milli Bremen, Hamborg, Istanbul og Trabzon. Akin er sjálfur af tyrkneskum ættum en fæddur og uppalinn í Þýskalandi og skilar sögunni, sem hann skrifar auk þess sjálfur, með krafti og innlifun. Með í för er einvala lið tyrkneskra og þýskra leikara, en í því samhengi ber að nefna að sérstakur heiðursgestur RIFF, sjálf Hanna Schygulla, leikur eitt þýsku hlutverkanna.
Aleksandra er nýjasta meistaraverk Alexanders Sukorov og er þetta í fyrsta skipti sem hann skrifar sitt eigið handrit. Það gerði hann til að skapa sögupersónu fyrir hina heimsfrægu óperusöngkonu, Galinu Vishnevskaya, sem leikur titilhlutverk myndarinnar. Sokurov kallar þetta stríðsmynd án stríðs, en hann hefur óbeit á þeirri stílfærðu eða ljóðrænu ýkjunálgun sem einkennir gjarnan stórmyndir um svipað efni. Sögusviðið er stríðshrjáð Tsjetsjenía samtímans og Aleksandra Nikolaevna er amma á leið að hitta barnabarn sitt, ungan mann sem er einn besti hermaðurinn í sinni deild. Hún mun eyða nokkrum dögum á svæðinu og uppgötva nýjan heim.
::: AÐ LOKUM
4 MONTHS, 3 WEEKS & 2 DAYS hefur verið beðið með sérstaklega mikilli eftirvæntingu síðan hún vann Gullpálmann á Cannes í maí. Um er að ræða eldfimt umfjöllunarefni og hún á örugglega eftir að vekja upp miklar umræður hér á landi eins og víðast hvar annars staðar. Hún er sýnd með íslenskum texa en hinar tvær með enskum texta.

