Fréttir
SEINNI HÁLFLEIKUR BÍÓDAGA AÐ HEFJAST
Aðsókn á Bíódaga Græna ljóssins hefur verið góð frá fyrsta degi, en á síðasta sunnudag varð algjör sprenging sem stendur enn yfir. Fylltust þá svo til allar sýningar allan daginn og það sama var uppi í teningnum í gær mánudag. Hartnær allar sýningar síðustu tvo daga hafa selst upp á endanum og hefur fólk nú brugðið á það ráð að kaupa miða fram í tímann til að tryggja sér sæti.
::: SEINNI HÁLFLEIKUR HEFST Á MORGUN: 7 FRUMSÝNINGAR OG AUKASÝNINGAR
Ekki er útlit fyrir neitt lát á aðsókninni, ekki síst í ljósi þess að hátíðin er aðeins hálfnuð og aðeins búið að rétt rúmlega helminginn af myndunum. Myndunum 18 var nefnilega skipt í tvo hópa og á morgun eru frumsýndar allar 7 myndirnar úr seinni hópnum:
Away From Her
Cocaine Cowboys
Die Falscher
Fuck
Going to Pieces
Goodbye Bafana
Shortbus
Auk þess verður frá og með morgundeginum bætt við aukasýningum á vinsælustu myndunum úr fyrri vikunni. Hér má sjá hvaða myndir verða sýndar á aukasýningum næstu 3 daga:
Miðvikudagur: Deliver us From Evil, Hallam Foe, Zoo
Fimmtudagur: The Bridge, No Body is Perfect, Curse of the Golden Flower
Föstudagur: Death of a President, For Your Consideration, Goya´s Ghosts
::: AÐ LOKUM
Miðasala á nýju myndunum og aukasýningunum er hafin á Miða.is og í Regnboganum! Nýjustu dagskrána er alltaf hægt að nálgast á Miða.is
Sala á 10 mynda pössum hefur gengið gríðarlega vel og er svo komið að þeir eru svo til uppseldir. Lokað hefur verið fyrir sölu á þeim á netinu og allra síðustu passarnir eru eingöngu til sölu í Regnboganum.


0 Athugasemd