Fréttir
SALA Á PÖSSUM OG MIÐUM AÐ HEFJAST
Bíódagar Græna ljóssins eru að bresta á, en veislan hefst eftir aðeins 2 daga í Regnboganum. Miðvikudagurinn 15. ágúst er opnunardagurinn og hann verður "sýnishornadagur", en þá verða sýndar nokkrar vel valdar myndir úr því 18 mynda úrvali sem sýnt verður á næstu tveimur vikum.
::: SALA Á PÖSSUM OG MIÐUM HEFST Á MORGUN
MasterCard forsala á 10 mynda afsláttarpössum hefst á morgun þriðjudag kl. 10:00 á Miða.is. Venjulegt verð á pössunum er 5.000 kr, sem þýðir að handhafar þeirra fá 50% afslátt af venjulegu bíómiðaverði, en Mastercard korthafar geta keypt passann í dag með 20% afslætti, á aðeins 4.000 kr. sem þýðir að þeir eru að fá 60% afslátt af venjulegu miðaverði með notkun passanna. Athugið að um takmarkað magn passa er að ræða.
Almenn sala á pössunum hefst einnig á morgun þriðjudag, en ekki fyrr en kl. 17:00, á Miða.is og í Regnboga . Á sama tíma og á sömu stöðum hefst miðasala á allar sýningar Bíódaga næstu tvær vikurnar.
Afhending passa fer fram í Regnboganum.
::: BÍÓKLÚBBURINN VERÐLAUNAÐUR
Bíóklúbbur Græna ljóssins verður vel verðlaunaður í vikunni. Í fyrsta lagi fá þeir 2 fyrir 1 á allar sýningar "sýnishornadagsins" á miðvikudaginn. Þeim er að auki boðið á opnunarsýningu Bíódaga, sem er lokuð boðssýning á Sicko, miðvikudaginn 15. ágúst kl. 19:00 í Regnboga. Öll þessi tilboð og alla þessa bíómiða geta meðlimir tryggt sér á Miða.is eftir að þeir fá senda tilskilda kóða í tölvupósti.
Allir sem eru skráðir meðlimir á morgun þriðjudag fá senda þá kóða sem þarf og athugið að í öllum tilfellum er um takmarkað magn að ræða; sem sagt fyrstir koma fyrstir fá.
Kaupa passa
Upplýsingar um allar myndirnar

