Fréttir
5 SÍÐUSTU TITLARNIR STAÐFESTIR Á BÍÓDAGA
Nú eru aðeins 7 dagar í að kvikmyndahlaðborðið BÍÓDAGAR GRÆNA LJÓSSINS hefjist, en þeir fara fram 15. - 29. ágúst í Regnboganum. Okkur er það ánægja að geta hér með staðfest síðustu kvikmyndirnar:
GOYA'S GHOSTS (Heimurinn)
Nýjasta þrekvirki snillingsins Milos Forman (Man on the Moon, The People Vs. Larry Flynt, Amadeus) fjallar um litríka ævi spænska málarans Francisco Goya. Í aðahlutverkum eru Natalie Portman, Stellan Skarsgard og Javier Bardem.
HALLAM FOE (Heimurinn)
Íslandsvinurinn Jamie Bell (Billy Elliot) fer á kostum í stórskemmtilegri þroskasögu eftir leikstjóra Young Adam. Myndin hlaut Silfurbjörninn á Berlín fyrr á árinu.
COCAINE COWBOYS (Heimildarmyndir)
Mögnuð heimildarmynd, sem hefur farið þó nokkra sigurför um heiminn og er orðinn að hálfgerðri "cult" mynd vestra, um fólkið og atburðina sem urðu uppspretta og innblástur að myndum á borð við Scarface og Miami Vice. Hér er sögð sagan af því hvernig Miami varð að höfustöðvum eiturlyfjadreifingar og þar með morða, spillingar og peningaþvættis, í Bandaríkjunum á 9. áratugnum, með því að tala við glæpamennina sjálfa sem stóðu fyrir starfseminni...og þessir kappar eru ekkert að sykurhúða frásagnirnar.
Stungur, afhöfðun, leigumorð og kyrking. Allt þetta færðu að sjá á fyrstu 5 mínútunum í þessari mögnuðu heimildarmynd um sögu "slasher" kvikmyndarinnar, uppgang hennar og fall og áhrifin á okkur öll, samfélagið og aðrar kvikmyndir. Ekki fyrir viðkvæma.
SHORTBUS (Miðnætti)
Opinská, ögrandi og beinskeytt mynd frá leikstjóra Hedwig and the Angry Inch um nokkra New York búa, sem rannsaka eigið kynferði og tilveru í frægum neðanjarðarkúbbi. Ekki fyrir viðkvæma.
::: AÐ LOKUM
Allar þær 18 kvikmyndir sem sýndar verða á Bíódögum eru þá hér með staðfestar. í vikunni kynnum við hvernig sölu á 10 mynda afsláttarpössum verður háttað, hvernig meðlimir í Bíóklúbbi Græna ljóssins verða verðlaunaðir á meðan Bíódögum stendur og hvernig opnunardeginum 15. ágúst verður háttað en þessari 2ja vikna kvikmyndaveislu verður startað með nokkrum nýstárlegum hætti.

