Fréttir

5 MYNDIR Í VIÐBÓT STAÐFESTAR Á BÍÓDAGA

Nú styttist í að kvikmyndahlaðborðið BÍÓDAGAR GRÆNA LJÓSSINS hefjist, en þeir fara fram 15. - 29. ágúst í Regnboganum. Okkur er það ánægja að geta hér með staðfest fimm nýjar kvikmyndir:

AWAY FROM HER (Heimurinn)
Fyrsta leikstjórnarverkefni leikkonunnar Söruh Polley. Julie Christie fer á kostum í hugljúfri mynd sem gagnrýnendur eru sammála um að sé ein allra besta mynd ársins. Til að mynda var hún númer 2 á lista vefsíðunnar Tomatoes í nýlegu hálfsársuppgjöri.

FAST FOOD NATION (Heimurinn)
Richard Linklater ásamt aragrúa góðar leikara kafa ofan í afleiðingar skyndibitafæðis, ekki bara á heilsuna heldur líka á umhverfið og samfélagið. Skemmtileg og beitt mynd byggð á samnefndri metsölubók.

GOODBYE BAFANA (Heimurinn)
Leikstjórinn Bille August fjallar hér um Nelson Mandela með því að segja söguna um samband hans við fangavörð sinn til tuttugu ára. Dennis Hysbert og Joseph Feinnes í aðalhlutverkum. Byggð á sannri sögu.

FUCK (Heimildarmyndir)
Stórskemmtileg heimildarmynd um orðið "Fuck"; uppruna þess, áhrif og áhrifamátt, ástæðuna fyrir því að það móðgar suma svona svakalega og hvaða gagn má hafa af notkun þess.

ZOO (Miðnætti)
Maður í Seattle lést árið 2005 eftir náin kynni við hest. Í þessar heimildarmynd er atvikið rannsakað og við komumst að því að til eru hópar manna sem stunda slík athæfi. Mynd sem vakti mikla athygli á Sundance fyrr árínu og hefur fengið frábæra dóma hjá gagnrýnendum. Ekki fyrir viðkvæma.

::: AÐ LOKUM
Alls eru þá 13 kvikmyndir staðfestar, en endanlegur fjöldi verður 18-20 myndir. Síðustu kvikmyndirnar verða staðfestar í næstu viku. Innan skamms verður einnig kynnt fyrirkomulag á sölu 10 mynda afsláttarpassa, hvernig meðlimir í Bíóklúbbi Græna ljóssins verða verðlaunaðir á Bíódögum og margt fleira spennandi.

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica