Fréttir

5 NÝJAR MYNDIR STAÐFESTAR Á BÍÓDAGA

KVIKMYNDAVEISLAN HEFST INNAN SKAMMS

Eins og áður hefur komið fram verða BÍÓDAGAR GRÆNA LJÓSSINS haldnir með pompi og prakt dagana 15. - 29. ágúst í Regnboganum. Um er að ræða 2ja vikna kvikmyndahlaðborð á vegum Græna ljóssins, þar sem frumsýndar verða um það bil 20 splunkunýjar og sérvaldar hágæða kvikmyndir frá öllum heimshornum.
Okkur er það ánægja að geta hér með staðfest fimm nýja titla sem sýndir verða á Bíódögunum:

DIE FALSCHER (Heimurinn)
Frábær þýsk mynd, byggð á sönnum atburðum, um hóp gyðinga í útrýmingarbúðum sem eru árið 1936 neyddir af nasistunum til leggja þeim lið í stríðinu með því að falsa erlenda gjaldmiðla. Tilnefnd til Gullbjörnsins í Berlín fyrr á árinu.

DEATH OF A PRESIDENT (Heimurinn)
"Heimildarmynd" um morð á George W. Bush, núverandi forseta USA, sem vakti gríðarlega athygli á Toronto kvikmyndahátíðinni og þó nokkrar deilur.

Nýja grínmyndin frá hópnum sem gerði hinar kostulegu myndir A Mighty Wind, Best in Show, Waiting for Guffman og Spinal Tap. Í þetta skiptið er það sjálfur kvikmyndabransinn sem fær háðulega útreið. Catherine O'Hara hlaut verðlaun gagnrýnendasamtaka í USA fyrir besta leik ársins í aukahlutverki.

Nýjasta þrekvirkið frá meistara Yimou Zhang, höfund stórmyndanna Hero og House of Flying Daggers. Í aðalhlutverkunum eru stjörnurnar Yun-Fat Chow og Li Gong.

DELIVER US FROM EVIL (Heimildarmyndir)
Grípandi heimildarmynd um einn mesta barnaníðing sem sögur fara af; kaþólskan prest sem misnotaði óteljandi börn yfir 30 ára tímabil. Með þátttöku prestsins í gerð þessarar myndar er djúp spilling innan kirkjunnar afhjúpuð. Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta heimildarmynd ársins.
 
::: AÐ LOKUM
10 mynda afsláttarkort verður til sölu í takmörkuðu magni á Miða.is og í Regnboganum. Á Miða.is verður einnig hægt að versla miða á allar sýningar Bíódaganna og skoða dagskrána. Allar upplýsingar um Bíódagana og myndirnar verður hægt að nálgast á heimasíðu Græna ljóssins og verður sérstök áhersla lögð á að veita skráðum meðlimum í Bíóklúbbi Græna ljóssins forgang á alla atburði Bíódaganna, kaup á afsláttarkortum osfrv.



1 Athugasemd

  1. Bergur skrifar :

    02.08.2007, kl. 16:51 | #

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica