Bíódagar
CRAZY HEART
Jeff Bridges hlaut Óskarsverðlaun í þessari vönduðu mynd sem hefur rakað til sín verðlaunum og tilnefningum. Maggie Gyllenhall og Colin Farrell eru í öðrum hlutverkum.
Jeff Bridges leikur kántrístjörnu sem má muna fífil sinn mun fegurri. Hann fellur fyrir einstæðri móður og þarf í kjölfarið að horfast í augu við áfengissýki sína og endurmeta líf sitt.
IMDB
***** (fullt hús)
"Crazy Heart er fyrsta mynd leikstjórans Coopers, hún sýnir svo ekki verður um villst að mættur er til leiks enn einn hæfileikamaðurinn í óháða geiranum sem kann að halda á litlum, mannlegum sögum af einstaklingum sem passa blessunarlega ekki inn í „normið“ og getur tekið hana slíkum ósviknum tökum að úr verður afburðakvikmynd. Hann nýtur hjálpar frá traustum tónlistarmönnum og aukaleikurum, en enginn nær að stela sekúndubroti af portrettsmíði frá hinum nýkrýnda stórleikara, Jeff Bridges, sem bætir enn einum gegnheila karakternum í safnið. Ég gef Crazy Heart bestu einkunn og hvet alla kvikmyndaáhugamenn til að láta hana ekki fara framhjá sér."
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið


0 Athugasemd