Bíódagar
UN PROPHÉTE
(A Prophet)
Ungur arabi er sendur í franskt fangelsi þar sem hann kemst fljótt til mikilla valda. Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda mynd ársins.
Myndin hefur hlotið ótal tilnefningar og verðlaun undanfarið og ber þar hæst að nefna sigur á Golden Globe og BAFTA hátíðunum sem besta erlenda myndin, auk tilnefningar til Óskarsverðlauna í sama flokki.
***** (fullt hús)
"Það þarf að leita langt aftur í tímann til að finna jafn vel gerða, veigamikla og áhrifaríka fangelsismynd og frönsku verðlaunamyndina Un Prophète. Leikstýrð af óvæginni raunhyggju af Audiard, kvikmynduð í nánast svart/hvítu ofurraunsæi (utan örfá atriði utan múranna), af Stéphane Fontaine, með einvala leikaralið sem virðist sérvalið úr röðum óbótamanna, segir myndin einstaka þroskasögu af Malik (Rahim), ungum afbrotamanni sem lærir að þrauka af við ómennskar aðstæður í óhugnanlegu fangelsi. Breytast úr engu í ljónið í frumskóginum...
...Rahim er svívirðilega góður sem Malik, hin unga og námfúsa glæpaspíra sem köld og yfirveguð planar og tekur því sem að höndum ber. Það er hinsvegar hinn ábúðarmikli Arestrup sem stelur myndinni í hlutverki „skólameistarans“ Césars í þessari námstofnun hins illa. Persónutöfrar hans, reisn og virðing með ómennskuna kraumandi rétt undir yfirborðinu, minnir ósegjanlega mikið á sjálfan Brando í Guðföðurnum. Rahim og Arestrup leggja sitt af mörkum ásamt vígalegu aukaleikaraliði, að gera Un Prophète, að ógleymanlegri upplifun. Klassík sem verður minnst í sömu andránni og I Am a Fugitive from the Chain Gang (1932), og annarra, ódauðlegra, þjóðfélagslega gagnrýnna glæpamynda sögunnar."
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
****
"Un prophète er stórkostleg mynd. Hún flakkar frá því að vera langdregin og hæg í það að halda manni alveg á tánum, japlandi á öllum nöglum fingranna af spennu. Jacques Audiard vinnur þrekvirki því myndin er öll mjög lágstemmd og hæg en á sama tíma mjög „intense“. Handritið er frábært, sérstaklega er trúverðugt hvernig þróunin á persónubyggingu Maliks sér stað.
Lýsing og myndataka minna sífellt á innilokunina, þó að Malik hafi það gott er hann ekki frjáls maður. Nærmyndir eru mikið notaðar til að tákna líðan persóna, sem er oftar en ekki vanlíðan."
- Magnús Michelsen, Bíófilman


0 Athugasemd