Bíódagar
DAS WEISSE BAND
The White Ribbon
Meistari Michael Haneke kemur hér með svart hvítt meistarastykki sem tilnefnd var til tveggja Óskarsverðlauna.
Undarlegir atburðir eiga sér stað í smáþorpi í norður Þýskalandi, árin fyrir fyrri heimsstyrjöldina og líta út fyrir að vera einhvers konar trúarbragðahegningar. Illa farin og bæld börnin í þorpinu virðast vera lykilinn að lausn ráðgátunnar.
Michael Haneke á að baki myndir á borð við Caché, Funny Games og Le pianiste og er almennt talinn einn virtasti leikstjóri samtímans.
Myndin var frumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni í fyrra og hefur síðan þá rakað til sín verðlaunum og tilnefningum.
IMDB
Dómar á Rotten Tomatoes
Trailerinn á Apple


0 Athugasemd